Fara í efni

Leikskólinn Óskaland leitar að metnaðarfullum, skapandi og jákvæðu starfsfólki

Langar þig að slást í hóp faglegra og öflugra starfsmanna leikskólans Óskalands og móta framtíðina
í gróskumiklum leikskóla?

Leitað er að metnaðarfullum, skapandi og jákvæðum deildarstjórum, leikskólakennurum og/eða leiðbeinendum og aðstoðarfólki í eldhúsi með góða hæfni í mannlegum samskiptum.  Viðkomandi þurfa að vera tilbúnir til að taka þátt í uppeldi og menntun barna í nánu samstarfi við stjórnendur og hafa gott vald á íslenskri tungu.

Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.

Leikskólinn Óskaland stækkar um áramótin 2024 – 2025 og verður þá níu deilda leikskóli.

Óskaland er staðsett við Finnmörk 1, í Hveragerði í grónu hverfi þar sem stutt er í fjölbreytta skógi vaxna náttúru. Fjórar nýjar deildir opna í byrjun ársins 2025 auk þess sem ný glæsileg lóð verður tekin í notkun og endurbætur gerðar á eldri lóðinni.

Einkunnarorð Óskalands eru: Leikur – lífsgleði – lærdómur

Í Óskalandi er sjálfsprottinn leikur aðal kennslutækið auk þess sem unnið með grenndar- og útikennslu, Vináttuverkefni Barnaheilla, Hugarfrelsi og Lubba.

Fríðindi í starfi:

Forgangur í leikskólapláss
Frítt fæði
Stytting vinnuvikunnar
Sundkort í sundlaugina í Laugaskarði

Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til 31. október 2024
Umsóknum skal skilað með rafrænum hætti á íbúagátt Hveragerðisbæjar - www.hveragerdi.ibuagatt.is

Nánari upplýsingar veita Gunnvör Kolbeinsdóttir skólastjóri og Eva Hrönn Jónsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 4834139  eða á netfangið: oskaland@hveragerdi.is


Síðast breytt: 10. október 2024
Getum við bætt efni síðunnar?