Fara í efni

Sumarstörf í Frístundamiðstöðinni Bungubrekku

Starfstímabil á sumarstörfum Bungubrekku er frá lok maí/byrjun júní til lok ágúst. Möguleiki á að minnka vinnu eða fara í leyfi tímabilið 12. júlí - 4. ágúst

Vinnutími er frá 08:00-16:00 alla virka daga.

Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri.

Frístundaleiðbeinandi - Almennt starf

Frístundamiðstöðin leitar að frístundaleiðbeinendum í almennt starf til þess að starfa á sumarnámskeiðum Bungubrekku. Starfið felur í sér vinnu á námskeiðum og viðburðum með börnum og unglingum á aldrinum 6-12 ára.
Unnið er eftir starfslýsingu frístundaleiðbeinanda sem má finna á heimasíðu Bungubrekku.

Matráður - Yfirumsjón með eldhúsi

Frístundamiðstöðin leitar að matráði til þess að undirbúa og elda hádegismat á sumarnámskeiðum 2025. Helstu verkefni eru:

  • Undirbúa heilsusamlegar hressingar og matreiða máltíðir fyrir skjólstæðinga sem samræma gildum sveitarfélagsins sem heilsueflandi samfélag.
  • Umsjón með eldhúsaðstöðu og þrifum í samræmi við verkferla starfsins
  • Skipulagning á matseðlum og innkaupum í takt við þarfir starfsins.
  • Vinna gegn andfélagslegri hegðun og skapa öruggt umhverfi.

Unnið er eftir starfslýsingu frístundaleiðbeinanda / matráðs sem má finna á heimasíðu Bungubrekku.

Hægt að óska eftir frekar upplýsingum um störfin í gegnum tölvupóstfangið bungubrekka@hvg.is.


Síðast breytt: 28. janúar 2025
Getum við bætt efni síðunnar?