Fara í efni

Forsetakosningar 1. júní 2024

Kjörfundur vegna forsetakosninga laugardaginn 1.júní 2024 hefst kl. 09:00 og lýkur kl. 22:00 þann dag í Grunnskólanum í Hveragerði við Skólamörk.

Gengið er inn um aðalinngang, vestanmegin. Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er austanmegin.


Í kjördeild 1 kjósi þeir sem hafa heimilisfang frá Aldinmörk til Heiðm
erkur auk þeirra sem eru óstaðsettir í hús og þeirra sem búa erlendis og njóta kosningaréttar á Íslandi.

Í kjördeild 2 kjósi þeir sem hafa heimilisfang frá Helluhrauni til Öxnalækjar.

Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi:
Kjósendum er skylt að gera kjörstjórn grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum með mynd.
Þá er ekki heimilt að vera með áróður á eða við kjörstað meðan á kjörfundi stendur svo sem barmmerki og/eða merkingar á bifreiðum.

Hveragerði maí 2024
Yfirkjörstjórnin í Hveragerði.


Síðast breytt: 27. maí 2024
Getum við bætt efni síðunnar?