Fara í efni

Bea Freitag með opið hús í Varmahlíðarhúsinu í október

Bea Freitag er frá Þýskalandi og dvelur í listamannahúsinu Varmahlíð núna í október. Hún er myndlistarmaður og vinnur aðallega blýants- og kolateikningar samhliða listmálun.

Bea vann á Heilsuhæli NLFÍ sem sjúkranuddari en einnig vann hún sem nuddari í Heilsuræktinni Laugaskarði hér á árum áður.

Bea verður með opið hús í Varmahlíð núna í október á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 16 – 18 frá 17. – 26. október. Allir eru velkomnir að kynnast list hennar og sjá húsið þessa daga.


Síðast breytt: 13. október 2017
Getum við bætt efni síðunnar?