Auglýst eftir neyðarheimili fyrir börn.
Neyðarheimili fyrir börn.
Barnaverndarþjónustur auglýsa eftir neyðarheimili.
Barnaverndarþjónusta Hveragerðis í samstarfi við barnaverndarþjónustu Ölfuss og barnaverndarþjónusta Árnesþings auglýsa eftir umsóknum frá fjölskyldum og/eða einstaklingum sem eru tilbúin til að veita börnum móttöku á einkaheimilum.
Barnaverndarþjónustur skulu hafa tiltæk úrræði til að veita börnum móttöku í bráðatilvikum til að tryggja öryggi þeirra, greina vanda eða til könnunar á aðstæðum þeirra sbr. 84.gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála veitir leyfi að undangenginni umsögn af hálfu barnaverndarþjónustu í umdæmi viðkomandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hlutverk neyðarheimilis er að taka á móti barni/börnum með stuttum fyrirvara til skemmri tíma eða í allt að þrjá mánuði.
- Leitað er eftir fólki sem hefur áhuga á velferð barna og er tilbúið að taka á móti þeim með stuttum fyrirvara og mæta breytilegum þörfum þeirra. Mikilvægt er að skapa þeim öruggar aðstæður með hlýju og nærgætni.
- Um er að ræða gefandi starf þar sem fjölskyldur fá tækifæri til að hlúa að börnum sem upplifað hafa erfiðar heimilisaðstæður.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla og þekking af starfi með börnum er æskileg.
- Aldurstakmark umsækjenda er 25 ára.
Áhugsamir sendi ferilskrá ásamt kynningarbréfi til Ernu Harðar Solveigardóttur deildarstjóra velferðarþjónustu Hveragerðisbæjar, Eyrúnu Hafþórsdóttur deildarstjóra velferðarþjónustu Ölfuss eða Anný Ingimarsdóttur deildarstjóra velferðarþjónustu Árnesþings.
Erna Harðar Solveigardóttir
Deildarstjóri velferðarþjónustu Hveragerðis
erna@hveragerdi.is
483-4000
Eyrún Hafþórsdóttir
Deildarstjóri velferðarþjónustu Ölfuss
eyrun@olfus.is
480-3800
Anný Ingimarsdóttir
Deildarstjóri velferðarþjónustu Árnesþings
anny@arnesthing.is
480-1180
Farið er með allar persónuupplýsingar sem trúnaðarmál.
Sé frekari upplýsinga óskað eru þær veittar á framangreindum netföngum.
Umsóknarfrestur er til og með 13. febrúar 2025.