Starfsmann vantar við íþróttamannvirki!
09.07
Frétt
Laus störf
Hveragerðisbær óskar eftir að ráða kvenkyns starfsmann í 100% starf við sundlaugar- og baðgæslu við Sundlaugina í Laugaskarði
Starfið er vaktavinna sem felur m.a. í sér umsjón og eftirlit í búningsklefum kvenna, sundlaugargæslu, þrif, afgreiðslustörf ofl sem staðnum tilheyrir.
Hæfniskröfur:
- æskilegt er að viðkomandi sé þjónustulipur
- með góða framkomu
- ensku kunnáttu
- hafi góð tök á sundi
- hafi setið námskeið í skyndijálp og björgun RKÍ
Sótt er um starfið á íbúagátt Hveragerðisbæjar > mannauður > umsókn um starf
Umsóknum skal skilað fyrir 1. ágúst næstkomandi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 18. ágúst.
Nánari upplýsingar fást hjá Ólöfu Jónsdóttir forstöðumanni í síma: 7704231
Síðast breytt: 9. júlí 2025
Getum við bætt efni síðunnar?