Fara í efni

Blómstrandi dagar

Fjölskyldu og menningarhátíð sem haldin er í ágúst á hverju ári.

Blómstrandi dagar verða haldnir 15 .- 18. ágúst 2024.

Við bjóðum gesti velkomna á Bæjarhátíðina, Blómstrandi daga, í Hveragerði . Bæjarbúar taka virkan þátt í hátíðinni og framboð menningarviðburða hefur aukist ár frá ári jafnt og gestafjöldi. Áhersla er lögð á uppákomur frá fimmtudegi til sunnudags þótt hápunktur hátíðarinnar sé á laugardeginum. Áhugaverðar listsýningar og fjölbreyttir tónlistarviðburðir eru í bænum þessa daga ásamt heilsutengdum atriðum fyrir alla aldurshópa.

Dagskráin er fjölbreytt.

Blómstrandi dagar er fjölskyldu, menningar og heilsuhátíð án áfengis og eru foreldrar hvattir til þess að virða útivistartíma barna og unglinga.

Bæjarbúar leggja hátíðinni lið með því að skreyta sitt hverfi og sinn garð. Mikil stemning hefur líka myndast í kringum bílskúrsmarkaði og gallerí út um allan bæ.

Verðlaun verða veitt fyrir fallegustu, frumlegustu og mestu garða og húsaskreytingarnar og fyrir fallegustu götuna.

Alla helgina verður líf og fjör í bænum fyrir alla fjölskylduna

 Fylgist með hátíðinni á Facebook síðu Blómstrandi daga

Síðast breytt: 05.01.2024
Getum við bætt efni síðunnar?