Hér á síðunni má finna upplýsingar frá frummælendunum, Ara
Guðmundssyni, verkfræðingi hjá VST en hann flutti erindi frá Peter
Jessen, verkfræðingi sem boðaði forföll, Per Thore Nielsen,
umboðsmanni DUOL í Skandinavíu, Ingu Hersteinsdóttur, brunahönnuði
VSI, Lúðvíki S. Georgssyni, formanni mannvirkjanefndar KSÍ,
Sturlaugi Sturlaugssyni, formanni Íþróttabandalags Akraness og
Guðmundi Páli Jónssyni, bæjarfulltrúa á Akranesi.
Frummælendurnir kynntu loftborið íþróttahús eða mjúkhýsi sem
hugmynd að íþróttamannvirki í Hveragerði . Fulltrúar frá Akranesi
kynntu þá leið sem þeir fóru í uppbyggingu íþróttahallar.
Fyrirlestrar:
Ari Guðmundsson
Inga Hersteinsdóttir
Lúðvík Georgsson
Sturlaugur Sturlaugsson
Guðmundur Páll Jónsson
Fyrirlestur Per Thore Nielsen, umboðsmanni DUOL, birtist fljótlega
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga
Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli minninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Hún hefur einkum fengist við ljósmyndaverk og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Ljósmyndaverk Svölu eru ljóðræn og huglæg.
Svala mun sýna og segja frá verkum sínum í erindi í Listasafninu síðdegis í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Sunnudaginn 25. júlí kl. 15 verður
sýningin
ÁR: málverkið á tímum straumvatna
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson ▪ Þorvaldur
Skúlason
Nánari upplýsingar á heimasíðu safnsins: www. listasafnarnesinga.is
Verið velkomin











