Sunnumörk 2
810 Hveragerði
Sími: 483 4000
Bréfasími: 483 4801
Netfang: gfb@hveragerdi.is
Forstöðumaður: Guðmundur F. Baldursson, skipulags- og
byggingarfulltrúi. Skipulags- og byggingarfulltrúi situr í
framkvæmdaráði Hveragerðisbæjar og er framkvæmdastjóri skipulags-
og byggingarnefndar. Skipulags- og byggingarfulltrúi ber ábyrgð á
rekstri skipulags- og byggingardeildar, hefur yfirumsjón með
skipulags- byggingar- og brunamálum, ber ábyrgð á öllum
stofnframkvæmdum eignarsjóðs, vatns- og fráveitu Hveragerðisbæjar
og annast tilheyrandi áætlanagerð.
Samþykkt um byggingargjöld í
Hveragerði.
Reglur um smáhús
Eftirfarandi málaflokkar heyra undir skipulags- og
byggingarfulltrúa:
Skipulagsmál skv. skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og
skipulagsreglugerð nr. 400/1998.
Byggingarmál skv. skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og
byggingarreglugerð nr. 441/1998.
Brunamál
•yfirumsjón.
Gatnagerð
•stofnframkvæmdir
Eignasjóður
• stofnframkvæmdir fasteigna
Vatnsveita
•stofnframkvæmdir vatnsveitu
Fráveita
•stofnframkvæmdir fráveitu
Ársskýrslur skipulags- og byggingarfulltrúa:
Hér má finna fróðlega samantekt um
borholur innan Hveragerðisbæjar.
Við í Grunnskólanum í Hveragerði ætlum að vera með og vonumst til að sem flestir taki þátt. Hveragerði er heilsubær í fallegu umhverfi og góðar gönguleiðir er að finna víða í bænum.
Göngum í skólann-verkefnið leggur áherslu á að börn læri á umhverfi sitt með því að ganga í skólann.Við viljum öll að börnum finnist þau vera hluti af umhverfi sínu og læri þannig að bera virðingu fyrir því. Göngum í skólann getur þar haft áhrif. Foreldrar og börn eru því hvött til að fara gangandi í skólann, a.m.k. í septembermánuði. Nota tækifærið til að kynnast sínu nánasta umhverfi og fá að auki góða og nauðsynlega hreyfingu.
Það sem við þurfum að hafa í huga:
Að öll börn kunni að fara eftir umferðareglum.
Að yngstu börnin fái fylgd með fullorðnum, amk. fyrst um sinn, foreldrar gætu talað sig saman og skipst á.
Að gefa sér nægan tíma, ekki mæta of seint í skólann.
Framkvæmd:
Við ætlum að hafa smá keppni milli bekkja eða árganga um hver stendur sig best í að koma í skólann gangandi eða hjólandi. Vonandi virkar það hvetjandi á alla. Verðlaun verða í boði.
Við munum leggja áherslu á að sem flestir gangi eða hjóli í skólann á tímabilinu 8. sept til 6. okt.
Stefnt er að því að vinna frekar með verkefnið og verður sagt frá því síðar.
Með ósk um góða þátttöku.
Jónas og Hildigunnur
íþróttakennarar

Miðvikudaginn 8. september kl. 17-19 verða hér í Grunnskólanum fulltrúar frá flestum íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði , til að kynna starf sitt og taka á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton, sunddeildina, körfubolta, kór, skátana, hestamannafélagið, golf, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið, bókasafnið, félagsmiðstöðina og leikfélagið.
Erna Ingvarsdóttir
Deildarstjóri yngsta stigs
Miðvikudaginn 8. september kl. 19:30 verður brennibolti fyrir allar konur á sparkvelli grunnskólans (gervigrasi).
Fjölmennum og skemmtum okkur saman.










