Sunnan3 - Rafrænt þjónustutorg
Skoðanakönnun
27.7.2010 08:38:59
Svala Ólafsdóttir með erindi í Listasafni Árnesinga í dag
Svala Ólafsdóttir með erindi í máli og myndum
Þriðjudaginn 27. júlí kl. 17 í Listasafni Árnesinga

Svala (1954) er gestalistamaður Varmahlíðarhússins um þessar mundir. Hún ólst upp á Selfossi en býr nú í Bandaríkjunum. Hún sótti menntun sína til Bandaríkjanna með áherslu á ljósmyndun og hefur frá námslokum sinnt listsköpun og kennslu ytra. Nánari upplýsingar um Svölu er að finna á heimasíðu safnsins www.listasafnarnesinga.is og á heimasíðu hennar sjálfrar www.svalaolafsdottir.com

Í verkum sínum fjallar Svala meðal annars um tengslin á milli minninganna, sagnanna, og svo hins uppfundna, eða tilbúna. Hún hefur einkum fengist við ljósmyndaverk og oftar enn ekki er myndum raðað saman, tveimur eða fleirum til þess að skapa orðræðu eða ef til vill torræðu á milli einstakra ramma. Ljósmyndaverk Svölu eru ljóðræn og huglæg.

Svala mun sýna og segja frá verkum sínum í erindi í Listasafninu síðdegis í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Tilkynningar
9.9.2010 10:10:21
Frétt frá knattspyrnudeild Hamars.
Laugardaginn 4. september s.l. var fótboltahátíð hjá knattspyrnudeild Hamars. Rennt var yfir hápunkta sumarsins, leikmannasamningar voru undirritaðir við efnilega leikmenn 3. flokks, nýir þjálfarar voru kynntir til sögunnar og nýrri æfingatöflu var dreift. Að því loknu var öllum iðkendum og foreldrum þeirra boðið í grillveislu og svo á hinn mikilvæga leik Hamars og KV, sem Hamar vann og tryggði þar með endanlega sæti sitt í 2. deild á næsta keppnistímabili.
2. flokkur Hamars í knattspyrnu tekur svo formlega til starfa n.k. mánudag 13. september með æfingu á Hamarsvelli kl. 17:30. Á myndinni sjást nokkrir efnilegir leikmenn skrifa undir KSÍ samninga við félagið.

Bestu kveðjur,
Óli Jó

7.9.2010 11:24:11
Styrkir úr Afreks- og styrktarsjóði Hveragerðisbæjar
7.9.2010 10:37:09
Göngum í skólann í Hveragerði
Verkefnið Göngum í skólann verður sett af stað þann 8. september og lýkur því formlega á alþjóðlega Göngum í skólann deginum 6. október næstkomandi.

Við í Grunnskólanum í Hveragerði ætlum að vera með og vonumst til að sem flestir taki þátt. Hveragerði er heilsubær í fallegu umhverfi og góðar gönguleiðir er að finna víða í bænum.

Göngum í skólann-verkefnið leggur áherslu á að börn læri á umhverfi sitt með því að ganga í skólann.Við viljum öll að börnum finnist þau vera hluti af umhverfi sínu og læri þannig að bera virðingu fyrir því. Göngum í skólann getur þar haft áhrif. Foreldrar og börn eru því hvött til að fara gangandi í skólann, a.m.k. í septembermánuði. Nota tækifærið til að kynnast sínu nánasta umhverfi og fá að auki góða og nauðsynlega hreyfingu.

Það sem við þurfum að hafa í huga:
Að öll börn kunni að fara eftir umferðareglum.
Að yngstu börnin fái fylgd með fullorðnum, amk. fyrst um sinn, foreldrar gætu talað sig saman og skipst á.
Að gefa sér nægan tíma, ekki mæta of seint í skólann.

Framkvæmd:
Við ætlum að hafa smá keppni milli bekkja eða árganga um hver stendur sig best í að koma í skólann gangandi eða hjólandi. Vonandi virkar það hvetjandi á alla. Verðlaun verða í boði.

Við munum leggja áherslu á að sem flestir gangi eða hjóli í skólann á tímabilinu 8. sept til 6. okt.

Stefnt er að því að vinna frekar með verkefnið og verður sagt frá því síðar.
Með ósk um góða þátttöku.

Jónas og Hildigunnur
íþróttakennarar
7.9.2010 09:15:10
Íþrótta- og tómstundakynningardagur frá foreldrafélaginu

Sú nýbreytni verður tekin upp nú í haust að hafa sérstakan kynningardag fyrir íþrótta- og tómstundastarf hér í bæ.
Miðvikudaginn 8. september kl. 17-19 verða hér í Grunnskólanum fulltrúar frá flestum íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði , til að kynna starf sitt og taka á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton, sunddeildina, körfubolta, kór, skátana, hestamannafélagið, golf, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið, bókasafnið, félagsmiðstöðina og leikfélagið.

Erna Ingvarsdóttir
Deildarstjóri yngsta stigs
Fundargerðir
Skjöl
Br100902.pdfBæjarráð Ósamþykkt2.9.2010
Br100819.pdfBæjarráð19.8.2010
Br100805.pdfBæjarráð6.8.2010
Br100715.pdfBæjarráð16.7.2010
skn100701.pdfSkipulags- og byggingarnefnd2.7.2010