Styttu þér leið...
Skoðanakönnun
26.6.2010 10:59:34
Sólin skín á Blóm í bæ
Nú undir hádegi á öðrum sýningardegi Blóma í bæ hefur sólin brotist fram og nú skín sólin á bæjarbúa og gesti og allt útlit fyrir frábæran góðviðrisdag í bænum. Hiti rúm 15 stig og logn.
Hvað er betra en að heimsækja Hveragerði, skoða stórkostlegar skreytingar í bænum og njóta afurða garðyrkjubænda frá öllu landinu, kíkja í Lystigarðinn og sjá nýja útisvæðið. Njóta góðra veitinga og kíkja síðan í Hveragarðinn í leirfótabað eða í sundlaugina í Laugaskarði.
Eigið yndislegan dag í blómabænum Hveragerði.....
Tilkynningar
7.9.2010 10:37:09
Verkefnið Göngum í skólann verður sett af stað
þann 8. september og lýkur því formlega á alþjóðlega Göngum í
skólann deginum 6. október næstkomandi.
Við í Grunnskólanum í Hveragerði ætlum að vera með og vonumst til að sem flestir taki þátt. Hveragerði er heilsubær í fallegu umhverfi og góðar gönguleiðir er að finna víða í bænum.
Göngum í skólann-verkefnið leggur áherslu á að börn læri á umhverfi sitt með því að ganga í skólann.Við viljum öll að börnum finnist þau vera hluti af umhverfi sínu og læri þannig að bera virðingu fyrir því. Göngum í skólann getur þar haft áhrif. Foreldrar og börn eru því hvött til að fara gangandi í skólann, a.m.k. í septembermánuði. Nota tækifærið til að kynnast sínu nánasta umhverfi og fá að auki góða og nauðsynlega hreyfingu.
Það sem við þurfum að hafa í huga:
Að öll börn kunni að fara eftir umferðareglum.
Að yngstu börnin fái fylgd með fullorðnum, amk. fyrst um sinn, foreldrar gætu talað sig saman og skipst á.
Að gefa sér nægan tíma, ekki mæta of seint í skólann.
Framkvæmd:
Við ætlum að hafa smá keppni milli bekkja eða árganga um hver stendur sig best í að koma í skólann gangandi eða hjólandi. Vonandi virkar það hvetjandi á alla. Verðlaun verða í boði.
Við munum leggja áherslu á að sem flestir gangi eða hjóli í skólann á tímabilinu 8. sept til 6. okt.
Stefnt er að því að vinna frekar með verkefnið og verður sagt frá því síðar.
Með ósk um góða þátttöku.
Jónas og Hildigunnur
íþróttakennarar
7.9.2010 09:15:10

Sú nýbreytni verður tekin upp nú í haust
að hafa sérstakan kynningardag fyrir íþrótta- og tómstundastarf hér
í bæ.
Miðvikudaginn 8. september kl. 17-19 verða hér í Grunnskólanum fulltrúar frá flestum íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði , til að kynna starf sitt og taka á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton, sunddeildina, körfubolta, kór, skátana, hestamannafélagið, golf, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið, bókasafnið, félagsmiðstöðina og leikfélagið.
Miðvikudaginn 8. september kl. 17-19 verða hér í Grunnskólanum fulltrúar frá flestum íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði , til að kynna starf sitt og taka á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton, sunddeildina, körfubolta, kór, skátana, hestamannafélagið, golf, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið, bókasafnið, félagsmiðstöðina og leikfélagið.
Erna Ingvarsdóttir
Deildarstjóri yngsta stigs
6.9.2010 11:45:24
Miðvikudaginn 8. september kl. 19:30 verður brennibolti fyrir allar konur á sparkvelli grunnskólans (gervigrasi).
Fjölmennum og skemmtum okkur saman.
Viðburðir
Grænmetismarkaður í Hveragerði
13.8.2010
Grænmetismarkaður í Hveragerði
14.8.2010
Guðsþjónusta í Hveragerðiskirkju
15.8.2010
Fundargerðir
Skjöl











