Styttu þér leið...
Skoðanakönnun
15.6.2010 12:33:50
Undirbúningur að ungmennaráði hafinn
Skipun undirbúningshóps sem vinna á að stofnun ungmennaráðs í Hveragerði var einróma samþykkt á fyrsta fundi bæjarstjórnar að afloknum kosningum.
Undirbúningshópurinn hafi það hlutverk að gera tillögu að stofnun ungmennaráðs, skilgreina hlutverk þess og samsetningu. Tilgangur ungmennaráðs er að vera bæjarstjórn til ráðgjafar um málefni ungs fólks í Hveragerði.
Bæjarstjórn samþykkti ennfremur að Friðrik Sigurbjörnsson,
Sandra Sigurðardóttir og Sunna Björk Guðmundsdóttir skipi
undirbúningshópinn er ljúka skal störfum fyrir 1. september
nk.
Tilkynningar
9.9.2010 10:10:21
Laugardaginn 4. september s.l. var
fótboltahátíð hjá knattspyrnudeild Hamars. Rennt var yfir
hápunkta sumarsins, leikmannasamningar voru undirritaðir við
efnilega leikmenn 3. flokks, nýir þjálfarar voru kynntir til
sögunnar og nýrri æfingatöflu var dreift. Að því loknu var öllum
iðkendum og foreldrum þeirra boðið í grillveislu og svo á hinn
mikilvæga leik Hamars og KV, sem Hamar vann og tryggði þar með
endanlega sæti sitt í 2. deild á næsta keppnistímabili.
2. flokkur Hamars í knattspyrnu tekur svo formlega til starfa n.k. mánudag 13. september með æfingu á Hamarsvelli kl. 17:30. Á myndinni sjást nokkrir efnilegir leikmenn skrifa undir KSÍ samninga við félagið.
2. flokkur Hamars í knattspyrnu tekur svo formlega til starfa n.k. mánudag 13. september með æfingu á Hamarsvelli kl. 17:30. Á myndinni sjást nokkrir efnilegir leikmenn skrifa undir KSÍ samninga við félagið.
Bestu kveðjur,
Óli Jó


7.9.2010 10:37:09
Verkefnið Göngum í skólann verður sett af stað
þann 8. september og lýkur því formlega á alþjóðlega Göngum í
skólann deginum 6. október næstkomandi.
Við í Grunnskólanum í Hveragerði ætlum að vera með og vonumst til að sem flestir taki þátt. Hveragerði er heilsubær í fallegu umhverfi og góðar gönguleiðir er að finna víða í bænum.
Göngum í skólann-verkefnið leggur áherslu á að börn læri á umhverfi sitt með því að ganga í skólann.Við viljum öll að börnum finnist þau vera hluti af umhverfi sínu og læri þannig að bera virðingu fyrir því. Göngum í skólann getur þar haft áhrif. Foreldrar og börn eru því hvött til að fara gangandi í skólann, a.m.k. í septembermánuði. Nota tækifærið til að kynnast sínu nánasta umhverfi og fá að auki góða og nauðsynlega hreyfingu.
Það sem við þurfum að hafa í huga:
Að öll börn kunni að fara eftir umferðareglum.
Að yngstu börnin fái fylgd með fullorðnum, amk. fyrst um sinn, foreldrar gætu talað sig saman og skipst á.
Að gefa sér nægan tíma, ekki mæta of seint í skólann.
Framkvæmd:
Við ætlum að hafa smá keppni milli bekkja eða árganga um hver stendur sig best í að koma í skólann gangandi eða hjólandi. Vonandi virkar það hvetjandi á alla. Verðlaun verða í boði.
Við munum leggja áherslu á að sem flestir gangi eða hjóli í skólann á tímabilinu 8. sept til 6. okt.
Stefnt er að því að vinna frekar með verkefnið og verður sagt frá því síðar.
Með ósk um góða þátttöku.
Jónas og Hildigunnur
íþróttakennarar
7.9.2010 09:15:10

Sú nýbreytni verður tekin upp nú í haust
að hafa sérstakan kynningardag fyrir íþrótta- og tómstundastarf hér
í bæ.
Miðvikudaginn 8. september kl. 17-19 verða hér í Grunnskólanum fulltrúar frá flestum íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði , til að kynna starf sitt og taka á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton, sunddeildina, körfubolta, kór, skátana, hestamannafélagið, golf, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið, bókasafnið, félagsmiðstöðina og leikfélagið.
Miðvikudaginn 8. september kl. 17-19 verða hér í Grunnskólanum fulltrúar frá flestum íþrótta- og tómstundagreinum í Hveragerði , til að kynna starf sitt og taka á móti skráningu. Má þar nefna: Fimleika, fótbolta, badminton, sunddeildina, körfubolta, kór, skátana, hestamannafélagið, golf, kirkjustarfið, hjálparsveitina, listasafnið, bókasafnið, félagsmiðstöðina og leikfélagið.
Erna Ingvarsdóttir
Deildarstjóri yngsta stigs
Viðburðir
Grænmetismarkaður í Hveragerði
13.8.2010
Grænmetismarkaður í Hveragerði
14.8.2010
Guðsþjónusta í Hveragerðiskirkju
15.8.2010
Fundargerðir
Skjöl











