Sunnan3 - Rafrænt þjónustutorg
Skoðanakönnun
24.5.2007 14:35:16
17. júní hátíðarhöld

Dagskrá 17. júní 2007

Kl. 10:00

Þrautabraut og 60 metra hlaup fyrir börn og fullorðna

veitt verðlaun eftir aldursflokkum

Kl. 10-11

Morgunverður við Grunnskólann í boði Hverabakarís

Kl. 11:00

Hátíðarmessa í Hveragerðiskirkju

Kl. 13:30

Skrúðganga. Gengið frá gatnamótum Grænumörk/Heiðmörk

og Laugskógar/Heiðmörk. Hestamannafélagið og skátarnir

taka þátt í skrúðgöngunni

Kl. 14:00

Skemmtidagskrá við sundlaugina:

Kynnar og skemmtikraftar: Hara systur

Ræða forseta bæjarstjórnar

Kirkjukór Hveragerðiskirkju

Fjallkonan

Ræða nýstúdents

Leikfélag Hveragerðis skemmtir börnunum

Laugarspaug

Hátíðarkaffisala í Grunnskólanum eftir dagskrá við sundlaug.
Andlitsmálun og ýmsar skemmtilegar verðlaunaþrautir fyrir
börnin verða við grunnskólann, þar verða seldar pylsur og gos.
Hestamannafélagið Ljúfur býður öllum börnum á hestbak.
Slökkvilið Hveragerðis verður með slökkviliðsbíla og fleira til sýnis.
Lystigarðurinn: Svifbrú yfir fossinn og kajak á ánni.
Hveragerðisbær hvetur alla til að draga íslenska
fánann að húni í tilefni dagsins. 

Gleðilega hátíð.

Tilkynningar
1.9.2010 10:43:41
Skjálftaskjól opnar í dag!
Félagsmiðstöðin SKJÁLFTASKJÓL hefur vetrarstarfsemi sína í dag, 1. september. Opið hús á miðstigi hefst kl. 16:30 og opið hús á elsta stigi hefst kl. 19:00.

Nánar má sjá dagskrá Skjálftaskjóls á www.skjalftaskjol.net

Sjáumst hress og í góðu skapi,
Palli, Guja og Heiða Margrét
24.8.2010 09:01:31
Gangbrautarvarsla og hafragrautur !

Ágætu foreldrar og forráðamenn

Hér eru tvær tilkynningar sem viljum koma á framfæri:

Í vetur verður gangbrautarvarsla frá kl. 7:45-8:05 á Breiðumörkinni á móts við Blómaborg.

Í vetur verður framreiddur hafragrautur nemendum að kostnaðarlausu frá kl. 7:50-8:05.

Ef einhverjar spurningar vakna hafið þá samband við okkur.

Bestu kveðjur stjórnendur Grunnskólans.

20.8.2010 09:32:36
Laus störf hjá Hveragerðisbæ

Starf: Grunnskóli
Nánari lýsing: Vantar starfsfólk í 50% ræstingarstarf við Grunnskólann í Hveragerði.Vinna eftir klukkan 15:30, tímabundið starf frá 20.08-30.09.10.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón Sigurðsson skólastjóri í síma 483-4350 eða á netfangið gudjon@hveragerdi.is
Starfshlutfall: 50 %
Fjöldi stöðugilda: 2

_____________________________________________________________________

Íþróttamannvirki:
Laust er til umsóknar 100% starf við íþróttamannvirki Hveragerðisbæjar.

Starfið felst aðallega í baðgæslu og umsjón í íþróttahúsi ásamt ræstingu. Viðkomandi þarf að hafa mikla ábyrgðartilfinningu, vera góður í mannlegum samskiptum og hafa ánægju af því að starfa með börnum.

Umsóknafrestur er til 27. ágúst 2010.

Allar nánari upplýsingar gefur menningar- og frístundafulltrúi í síma 483 4000

_____________________________________________________________________


Leikskólinn Óskaland:
óskar eftir að ráða starfskrafta í eftirtalin störf:

Deildarstjóra á deild fyrir 18 mán. – 3ja ára til 1.júní 2011
Leikskólakennara og leiðbeinendur á deildir.

Í Óskalandi er starfað samkvæmt aðalnámskrá og uppeldisstefnu Loris Malaguzzi frá borginni Reggio Emilia á Ítalíu.
Góður starfsandi ríkir í Óskalandi og mikil áhersla lögð á jákvæð, hlýleg og gefandi samskipti.

Til greina kemur að ráða starfskrafta með aðra menntun en leikskólakennaramenntun og/eða reynslu af störfum með börnum.

Umsóknarfrestur er til 27.ágúst 2010.

Upplýsingar veitir Gunnvör Kolbeinsdóttir leikskólastjóri í síma 4834139.



Bæjarstjórinn í Hveragerði


10.8.2010 14:41:59
Grunnskólinn Hveragerði - Upphaf skólaársins 2010-2011
Tilkynning um upphaf skólastarfs

Fyrsti starfsmannafundur skólaársins verður haldinn 16. ágúst n.k. kl 9:00.

Móttaka nýrra nemenda verður fimmtudaginn 19. ágúst kl.13:00 í sal skólans, foreldrar mæti með börnum sínum.

Nemendur skólans mæti á skólasetningu mánudaginn 23. ágúst sem hér segir:

Kl. 9:00 yngsta stig 1.-4. bekkur
Kl. 10:00 miðstig 5.-7. bekkur
Kl. 11:00 elsta stig 8.-10. bekkur

Skólasel verður opið frá og með kl.9:30 þann 23. ágúst.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 24. ágúst.

Fundargerðir
Skjöl
Br100902.pdfBæjarráð Ósamþykkt2.9.2010
Br100819.pdfBæjarráð19.8.2010
Br100805.pdfBæjarráð6.8.2010
Br100715.pdfBæjarráð16.7.2010
skn100701.pdfSkipulags- og byggingarnefnd2.7.2010