Bærinn
10.03.2010
Starfsfólk sundlaugarinnar sigursælt í Lífshlaupinu

Starfsfólk Sundlaugarinnar Laugaskarði náði að verja titil frá síðasta ári í Lífshlaupinu en þau voru í fyrsta sæti með mesta dagafjölda í hreyfingu. Þau kepptu í flokki fyrirtækja með 3 - 9 starfsmenn. Þau voru í þriðja sæti með fjölda mínútna í hreyfingu á mann en þar bar af öðrum Sigurgeir Guðmundsson en hann var með 4430 hreyfimínútur á 21 degi.

Frábær árangur hjá þeim öllum og óskum við þeim til hamingju.

Aftari röð: Einar, Sighvatur, Hildigunnur og Steinar. Fremri röð: Sigurgeir, Ólöf, Rúna og Arnfríður


Sigurgeir fékk viðurkenningu fyrir flestar hreyfistundir á dag en hann bætti sig um 1173 mín. frá síðasta ári.

09.03.2010
Tvöföldun Suðurlandsvegar boðin út

Það er Sunnlendingum öllum mikið fagnaðarefni að nú skuli vera búið að bjóða út tvöföldun Suðurlandsvegar milli Lögbergsbrekku og Litlu kaffistofunnar, eða 6,5 km kafli. Framkvæmdir munu hefjast í vor og er óhætt að fullyrða að með þessum vegbótum sé stigið stórt skref í átt að tvöföldum Suðurlandsvegi alla leið austur fyrir Selfoss.

Hér fyrir neðan má lesa fréttina sem birtist á vísir.is um málið.


Fyrsta stóra útboð í vegagerð í heilt ár

Kristján Már Unnarsson skrifar:

Vegagerðin hefur boðið út tvöföldun Suðurlandsvegar við Sandskeið. Þetta er fyrsta stóra útboðið í vegagerð hérlendis í nærri heilt ár.

Boðinn er út 6,5 kílómetra kafli milli Lögbergsbrekku og Litlu Kaffistofunnar og verða tilboð opnuð þann 20. apríl. Þetta er fyrsta stóra verkið sem Vegagerðin býður út frá því smíði nýrrar Hvítárbrúar í Árnessýslu var boðin út í mars í fyrra en eftir það settu stjórnvöld á framkvæmdastopp vegna fjárskorts og útboðum stærri nýframkvæmda var frestað.

Áætlað er að tvöföldun kaflans um Sandskeið kosti um einn og hálfan milljarð króna en Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir í Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar að fjármunirnir fáist með því að yfirfæra hluta innistæðu, sem var fyrir hendi í árslok 2008, til ársins 2010. Með sömu innistæðu á einnig að bjóða út í næsta mánuði tvöföldun Vesturlandsvegar í Mosfellsbæ, en það er verk upp á 500 milljónir króna.

Vinna við bæði þessi verk ætti að vera komin á fullt í byrjun sumars, og taka rúmt ár, en verklok eru áætluð haustið 2011.

Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri

09.03.2010
Áttu gamlar bæjarlífsmyndir ?
Þessa dagana er Bjarki Þór Guðmundsson að vinna við það að skanna inn gamlar myndir sem marka spor í sögu Hveragerðis. Myndirnar sýna fjölbreytt mannlíf, uppbyggingu mannvirkja, menningaviðburði o.fl. Horft er til þess að myndirnar verði aðgengilegar á heimasíðu bæjarins.

Ef að þú átt gamlar myndir úr bæjarlífinu væri gaman að fá þær að láni til skönnunar. Við tökum við myndum á bæjarskrifstofunni í umslögum merktum eigenda og símanúmeri. Að lokinni skönnun verður myndunum skilað til eigenda.
05.03.2010
Aukið vægi almenningsíþrótta hjá UMFÍ

Ungmennafélag Íslands hefur ákveðið að gefa verkefnum á sviði almenningsíþrótta enn meira vægi í starfsemi félagsins með það að markmiði að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi hreyfingar og hollra lifnaðarhátta.

Eitt verkefna UMFÍ á sviði almenningsíþrótta er verkefnið ,,ganga.is“. Á vefnum ganga.is gefur að líta ýmsan fróðleik um hvað beri að hafa í huga þegar farið er af staði í gönguferð eða fjallgöngu. Á vefnum má finna fjölda stuttra og langra gönguleiða um allt land sem og upplýsingar um þau fjöll sem sambandsaðilar mæla sérstaklega með að þátttakendur í verkefninu ,,Fjölskyldan á fjallið“ gangi upp á. Lagt er upp með að fjölskyldan hreyfi sig saman í fallegri náttúru. Inn á vefnum ganga.is er einnig hægt að finna upplýsingar um helstu sundlaugar og golfvelli landsins sem gefur góða yfirsýn yfir þá þjónustu sem er fyrir hendi á hverjum stað.

Til að hvetja fólk enn frekar til aukinnar hreyfingar hefur verkefninu ,,Hættu að hanga! Komdu að synda, hjóla eða ganga!“, verið ýtt úr vör. Þátttakendur skrá þá hreyfingu sem þeir kjósa að iðka hverju sinni á gönguvefinn og geta átt möguleika á veglegum viðurkenningum og verðlaunum fyrir góða þátttöku. Nánari upplýsingar um verkefnið verða að finna á vefnum ganga.is en verkefnið hefst í lok maí og stendur í 103 daga.

Verkefni UMFÍ hljómar vel við fyrirhugaða heilsudaga, Heilsuþristinn - hreyfing, heilsa og hamingja, sem verða í Hveragerði 10. - 13. júní næstkomandi. En það er þríþraut þar sem almenningur gengur/skokkar, syndir eða hjólar sér til heilsubótar. Nánari upplýsingar um heilsudagana koma síðar.

04.03.2010
Loftmælingar í "beinni"

Nú er langþráðri forritunarvinnu lokið og búið er að opna tengil inná heimasíðu Heibrigðiseftirlits Suðurlands þar sem nú birtast raunmælingar frá loftmælistöðvunum í Hveragerði og í Norðlingaholti.

Það er Orkuveita Reykjavíkur sem sá um uppsetningu mælistöðvanna.

Á stöðvunum er mælt magn brennisteinsvetnis (H2S) og brennisteinsdíoxiðs (SO2) í andrúmslofti en einnig má finna þar veðurfarslegar mælingar eins og hitastig, úrkomu og vindátt. Mælirinn hér í Hveragerði er staðsettur við Finnmörk.

Hér má sjá sólarhringsmeðaltal hvers dags ásamt klukkustundarmeðaltali.

Innan skamms verður settur tengill hér á forsíðu þar sem íbúar geta á auðveldan hátt nálgast þessar upplýsingar.

11.12.2009
Fjölmenni var á borgarafundi um loftborið íþróttahús

Hér á síðunni má finna upplýsingar frá frummælendunum, Ara Guðmundssyni, verkfræðingi hjá VST en hann flutti erindi frá Peter Jessen, verkfræðingi sem boðaði forföll, Per Thore Nielsen, umboðsmanni DUOL í Skandinavíu, Ingu Hersteinsdóttur, brunahönnuði VSI, Lúðvíki S. Georgssyni, formanni mannvirkjanefndar KSÍ, Sturlaugi Sturlaugssyni, formanni Íþróttabandalags Akraness og Guðmundi Páli Jónssyni, bæjarfulltrúa á Akranesi.

Frummælendurnir kynntu loftborið íþróttahús eða mjúkhýsi sem hugmynd að íþróttamannvirki í Hveragerði . Fulltrúar frá Akranesi kynntu þá leið sem þeir fóru í uppbyggingu íþróttahallar.

Fyrirlestrar:
Ari Guðmundsson
Inga Hersteinsdóttir
Lúðvík Georgsson
Sturlaugur Sturlaugsson
Guðmundur Páll Jónsson

Fyrirlestur Per Thore Nielsen, umboðsmanni DUOL, birtist fljótlega




Tilkynningar
10.3.2010 08:30:27
Kynningarfundur um rammaáætlun

Kynningarfundur um rammaáætlun verður haldinn á Hótel Selfossi laugardaginn, 13. mars n.k.

Verkefnisstjórn 2. áfanga Rammaáætlunar um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði hélt kynningarfund þriðjudaginn 9. mars s.l. Þar voru kynntar niðurstöður faghópa verkefnisstjórnar sem metið hafa svæði og virkjunarkosti, hver á síðu sérsviði.

Skýrslu verkefnisstjórnar um virkjunarkosti til mats og nðurstöður faghópa, auk ítarefnis, má nálgast á vefsíðu rammaáætlunar, www.rammaáætlun.is, frá og með mánudeginum 8. mars.

Umsagnarferli:
Niðurstöður faghópanna verða settar í opið kynningarferli sem stendur til 19. apríl. Öllum er heimilt að senda inn umsögn um niðurstöður faghópanna. Umsögnum er veitt viðtaka um tölvupóstfangið umsogn@rammaaetlun.isen einnig má senda skriflegar umsagnir á póstfangið: Rammaáætlun, c/o Orkugarður, Grensásvegi 9, 108 Reykjavík.

Efnt verður til kynningarfunda víða um land á næstu vikum og verður fundur ætlaður Sunnlendingum haldinn á Hótel Selfoss 13. mars kl. 11:00.

Áhugasamir eru hvattir til að mæta.

8.3.2010 10:12:24
Leikfélag Hveragerðis frumsýnir Emil í Kattholti
Nú þegar líða tekur á seinni hluta vetrar og vorið tekur á móti okkur þá höfum við hjá Leikfélagi Hveragerðis staðið í ströngu við að skipuleggja frábæra fjölskylduskemmtun sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Um er að ræða meistaraverk Astridar Lindgren um strákskrattann og ólátabelginn Emil í Kattholti í þýðingu Vilborgar Dagbjartsdóttur. Leikstjórinn að þessu sinni er Sigurður Blöndal og þekkir hann vel til félagsins því hann leikstýrði meðal annars Kardimommubænum og Dýrunum í Hálsaskógi við góðan orðstír. Er þetta tilvalin skemmtun fyrir einstaklinga og hópa sem vilja gera sér dagamun og leggja upp í einstaka fjölskylduferð. Margt hefur gengið á hjá okkur síðustu misseri og má þar nefna endurbætur á húsnæði okkar(Austurmörk 23 beint á móti Shell og við hliðina á Eden.) og í framhaldi af því setjum við upp eina umfangsmestu sviðsmynd sem við höfum gert og það fyrir pollann hann Emil. Yfir 30 manns hafa lagt hönd á plóg til að láta þessa sýningu verða að veruleika og má einnig nefna að leikfélagið var í góðu samstarfi við grunnskólann hér í bæ við smíð á hinum ýmsu leikmunum og eru einnig nokkrir nemendur skólans sem láta ljós sitt skína í verkinu. Með helstu hlutverk fara: Dagbjartur Kristjánsson sem Emil, Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir sem Ída, Gunnar Þór Jónsson sem Anton (pabbi), Hafdís Ósk Guðmundsdóttir sem Alma (mamma), Guðmundur Kr. Erlingsson sem Alfreð og
Berglind María Ólafsdóttir sem Lína.
Hér að neðan má svo sjá skipulag fyrstu sýningahelga og er þessi listi ekki tæmandi því að við munum reyna að bæta inn á milli og aftan við, dagsetningum ef það hentar betur og ef aðsókn leyfir svo ekki hika við að spyrja um dagsetningar sem ekki eru á skipulaginu og við reynum að verða við þeim óskum.

Sýningaskipulag fyrir Emil í Kattholti

13.mars Laugardagur Kl:15.00 Frumsýning
14.mars Sunnudagur Kl:18.00
19.mars Föstudagur Kl:18.00
20.mars Laugardagur Kl:15.00
21.mars Sunnudagur Kl:14.00
26.mars Föstudagur Kl:18.00
27.mars Laugardagur Kl:15.00

Við hjá Leikfélagi Hveragerðis höfum ávallt reynt að hafa miðaverð í lágmarki þrátt fyrir umfang sýninga og er verðskráin fyrir Emil í Kattholti sem hér segir:
Almennt verð (5ára og eldri): 1700 kr.
Hópar 15+: 1500 kr.
Börn 4 ára og yngri: Engir peningar :D
Miðapantanir eru í Sjoppunni Sunnumörk í síma 587-1818
frá kl.12-18 alla daga

ATH. Húsið opnar 30 mínútum fyrir áætlaðan sýningartíma og eru miðarnir greiddir á staðnum.


Emil og Ida í Kattholti


Hér er Anton, pabbi Emils, að reyna að telja dagana fram að frumsýningu.


Ida og Lína vinnukona

3.3.2010 10:39:07
Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu
3.3.2010 10:28:34
Óperutónleikar í Hveragerðiskirkju.

Óperutónleikar í Hveragerðiskirkju 13. mars kl.17:00

Ópera Gala flytja aríur og dúetta úr nokkrum óperuperlum t.d. úr Ævintýrum Hoffmanns, Leðurblökunni, Lakmé og Hans og Grétu. Flytjendur: Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir sópran, Hólmfríður Jóhannesdóttir mezzósópran og Julian M. Hewlett Píanóleikari.


Smellið hér til að opna efnisskrá




Fundargerðir
Skjöl
Br100304Bæjarráð Ósamþykkt4.3.2010
bs20100225Bæjarstjórn26.2.2010
um100218Mannvirkja- og umhverfisnefnd19.2.2010
Br100218Bæjarráð18.2.2010
bs20100211Bæjarstjórn12.2.2010