Sumartilboð fyrir börn og unglinga
Menningar-, íþrótta- og frísstundasvið Hveragerðisbæjar gefur út sumarblað á hverju ári. Í blaðinu má finna upplýsingar um fjölbreytt barna- og unglingastarf sem íþróttafélagið Hamar, Golfklúbbur Hveragerðis, Hestamannafélagið Ljúfur og menningartengd starfsemi bjóða upp á.
Á sumrin er fjör í sundlauginni í Laugaskarði. Við vonumst til að fjölskyldan verði dugleg að sækja sér þá hollu hreyfingu sem sundið er - enda frítt í sund fyrir börn og unglinga í Hveragerðisbæ til 18 ára aldurs og fyrir börn úr dreifbýli Ölfuss sem eru í grunnskólanum í Hveragerði.
Nú í sumar er mikilvægt að allir taki höndum saman og hugi að öryggismálum í sumarleikjum. Trampolín eru orðin nokkuð algeng í görðum og er brýnt að foreldrar brýni fyrir börnum sínum aðgát og setji upp öryggisnet. Munum líka eftir hjálmunum í sumar, hvort sem við erum á hjóli, hestbaki, línuskautum eða brettum.
Reynslan hefur sýnt að foreldrar sem taka virkan þátt í lífi barna sinna eru besta forvörnin. Samvera foreldra og barna er afar mikilvæg og gefast mörg tækifæri til slíkra stunda á sumrin. Góðar samverustundir fjölskyldunnar búa til góðar minningar.
Jóhanna M. Hjartardóttir
Menningar- og frístundafulltrúi