Blómstrandi dagar

Bæjarhatíðin, Blómstrandi dagar, í Hveragerði verður haldin 16. – 19. ágúst n.k. Bæjarbúar taka virkan þátt í hátíðinni og framboð menningarviðburða hefur aukist ár frá ári jafnt og gestafjöldi. Áhersla er lögð á uppákomur frá fimmtudegi til sunnudags þótt hápunktur hátíðarinnar sé á laugardeginum. Áhugaverðar listsýningar og fjölbreyttir tónlistarviðburðir eru í bænum þessa daga ásamt heilsutengdum atriðum fyrir alla aldurshópa.

Blómstrandi dagar er fjölskyldu, menningar og heilsuhátíð án áfengis og eru foreldrar hvattir til þess að virða útivistartíma barna og unglinga.

Menningar- íþrótta- og frístundasvið bæjarins hefur umsjón með hátíðinni og er Jóhanna M. Hjartardóttir menningar- og frístundafulltrúi, jmh@hveragerdi.is viðburðastjóri hátíðarinnar.

Bæjarbúar leggja hátíðinni lið með því að skreyta sitt hverfi og sinn garð. Hér má sjá hverfislitina á korti.

  • Bleika og græna hverfið
  • Rauða og gula hverfið
  • Bláa og appelsínugula hverfið

Verðlaun verða veitt fyrir fallegustu, frumlegustu og mestu skreytingarnar á laugardagskvöldinu 18. ágúst við brennuna. Einnig fá litríkustu bæjarbúarnir viðurkenningu.

Hér neðst á síðunni má finna yfirlit yfir dagskrá Blómstrandi daga 2012

Hveragerdi_hverfislitakort-2011[1]