Forsetakosningar kjörfundur

skrifað 27. jún 2012
byrjar 30. jún 2012
 

Kjörfundur vegna forsetakosninga laugardaginn 30. júní 2012 hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00 þann dag. Kjörfundurinn verður í Grunnskólanum í Hveragerði, gengið er inn um aðalinngang við íþróttahúsið.

Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi:

Kjósandi skal hafa persónuskilríki meðferðis og allur áróður á og við kjörstað er óheimill.

Hveragerði 21. júní 2012 Kjörstjórnin í Hveragerðisbæ.