Fjölmenni reisir Hamarshöllina
Það ríkti gleði og mikið fjör í hópnum sem mætti í vinnu við nýju Hamarshöllina kl. 17 í gær, þriðjudag. Fjöldi einstaklinga á öllum aldri dreif að og var mæting sjálfboðaliða framar öllum vonum. Verkefnið fólst í að draga út hallardúkinn og að koma honum á rétta staði en hann er níðþungur og því þarf fjölmenni til að færa hann úr stað. Það var einstök sjón að verða vitni að því þegar tugir einstaklinga raðaði sér á kantinn og hljóp síðan með dúkinn á fullri ferð yfir völlinn. Smám saman færðist hvítur litur yfir svæðið sem á allra næstu dögum mun breytast í eitt glæsilegasta íþróttasvæði landsins.
Þegar dúkurinn er kominn í réttar skorður þarf að bolta saman hlutana og var sjálfboðaliðahópurinn orðinn ótrúlega sjóaður í þeim vinnubrögðum þegar vinnu lauk á tíunda tímanum í gærkvöldi. Haft var á orði að stemningin hefði verið eins og á góðum réttardegi, fjör, gleði og hlátrasköllin glumdu um allt svæðið. Flestir hafa hug á að mæta aftur í dag kl. 17 en þá verður klárað að setja upp dúkinn.
Þeir erlendu aðilar sem hafa yfirumsjón með verkinu eru yfir sig hrifnir og hafa sjaldan ef nokkurn tíma orðið vitni að viðlíka viðbrögðum hjá bæjarbúum þar sem þessi hús hafa verið sett upp. Við getum verið stolt af hópnum okkar Hvergerðingar og um helgina getum við öll séð afrakstur erfiðisins þegar húsið verður fyllt af lofti og íþróttahúsið verður loksins staðreynd.
Þeir sem hafa hug á að mæta í dag koma á svæðið kl. 17. Vinnuvettlingar eru ágætir og sólgleraugu nauðsyn enda endurkastið frá dúknum ansi mikið :-)
Aldís Hafsteinsdóttir Bæjarstjóri
Meðfylgjandi myndir tók Valdimar Thorlacius.
fleiri fréttir
-
18. jún 2013Veðrið spillti ekki gleðinni á 17. júní
-
14. jún 2013Lionsklúbburinn Eden og Kvenfélagið Bergþóra gefa Undralandi ipad fyrir sérkennslu skólans
-
13. jún 2013Gleðilega þjóðhátíð
-
07. jún 2013Óskað er eftir tilnefningum um fallega og vel hirta garða.
-
05. jún 2013Grunnskólinn til fyrirmyndar
-
05. jún 2013Frábær árangur hjá ungum íþróttamönnum
-
17. maí 2013Sýningin "Blóm í bæ" verður haldin árið 2014
-
17. maí 2013Danskt kaffihús í Grunnskólanum
-
17. maí 2013Regnbogafáni dreginn að húni
-
14. maí 2013Vinnuskóli og sumarnámskeið fyrir börn og ungmenni