logo_prufa
  •  Forsíða 
  •  Veftré 
  •  Hafa samband 
  •  Póstlisti 
  •  Hveragerðisbær 
  •  Mannlíf
    •  Atvinnulíf 
    •  Félagasamtök 
    •  Menning og listir 
    •  Íþróttir og útivist 
    •  Ágrip af sögu Hveragerðisbæjar 
    •  Heilsugæsla og heilbrigðiseftirlit 
    •  Vinabæir 
    •  Kirkju- og safnaðarstarf 
     
  •  Ferðamenn 
  •  Þjónusta 
  •  English 

Breyttur opnunartími bókasafnsins frá 1. júní.

skrifað fyrir 7 dögum

Lítil aðsókn hefur verið að safninu síðasta hálftímann á virkum dögum (18:30 – 19:00) í vetur svo við höfum ákveðið að loka safninu framvegis kl. 18:30 virka daga. Það er einnig til samræmis við aðra í húsinu. Nýr opnunartími tekur gildi 1. júní 2013 og verður þá opið virka daga kl. 13:00-18:30 og laugardaga kl. 11-14. Viðburðir verða áfram lengur eða á kvöldin ef þarf, en þeir eru alltaf auglýstir sérstaklega. Allar athugasemdir og óskir um breytingar á opnunartíma verða teknar til skoðunar.

Sumarlestur á bókasafninu

skrifað fyrir 3 dögum

Sumarlestur hefst fljótlega eftir að skóla lýkur og stendur fram í ágúst. Sumarlestur er lestrarhvetjandi verkefni fyrir 6-12 ára börn og miðar að því að viðhalda lestrarfærni barnanna yfir sumarið. Þema sumarlestrarins í ár er fuglar. Við munum að öllum líkindum geta boðið börnunum seinnipartsdagskrá einu sinni til tvisvar í mánuði meðan á sumarlestri stendur og svo er náttúrlega „uppskeruhátíð“ í lok sumars. Nánar um þetta fljótlega. Með bestu kveðju, Anna, Maria og Hlíf Fylgist með á Facebook síðu...

Leikskólinn Undraland auglýsir eftir leikskólakennara til starfa

skrifað fyrir 3 dögum

Leikskólinn Undraland Hveragerði óskar eftir leikskólakennara frá og með 22. Júlí 2013. Til greina kemur að ráða starfskrafta með aðra uppeldismenntun.
Leikskólinn starfar samkvæmt aðalnámskrá og uppeldisstefnu John Dewey.
Einkunarorð Undralands eru „ leikur, umhyggja og öryggi“.
Við leitum að ábyrgum, stundvísum og barngóðum einstaklingi.
Umsóknarfrestur er til 4. júní 2013.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Hveragerðisbæjar Sunnumörk 2. Umsóknareyðublöð eru á vef Hveragerðisbæjar: http://hveragerdi.is/

Upplýsingar veitir Sesselja Ólafsdóttir leikskólastjóri í síma 4834234

Hlaupastílsnámskeið

skrifað fyrir 2 dögum

Lærðu að hlaupa á léttari máta með Smart Motion hlaupatækninni

 
Mannlíf / Fréttir
 

Facebook logo Hveragerðisbær | Sunnumörk 2 | 810 Hveragerði | Sími 483 4000 | Fax 483 4801 | hve@hveragerdi.is | kt. 650169 4849 | Fréttir