Þverhlíð lokuð til 15. júní vegna hitaveituframkvæmda
03.05
Frétt
Fyrir hönd Hveragerðisbæjar og Veitna, tilkynnist að verktaki á vegum þeirra vinnur við að grafa upp eldri hitaveitulögn sem er í Þverahlíð og leggi þar nýja í staðinn. Þetta mun hafa þau áhrif að Þverahlíð verður lokuð á meðan framkvæmdum stendur. Samkvæmt núgildandi verkáætlun áætlar verktaki að verkinu verði lokið 15. júní.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta gæti valdið.
Byggingarfulltrúinn í Hveragerði.
Síðast breytt: 3. maí 2024
Getum við bætt efni síðunnar?