Fara í efni

Grunnskólinn í Hveragerði auglýsir kennarastöður lausar

Lausar eru eftirfarandi kennarastöður við Grunnskólann í Hveragerði:

  • Umsjónarkennsla
  • náttúrufræði á elsta stigi
  • danska
  • tónmennt

Um skólann

Grunnskólinn í Hveragerði er vel staðsettur í grónu og glæsilegu bæjarfélagi. Í skólanum eru um 470 nemendur og við hann starfar vel hæft og menntað starfsfólk. Einkunnarorð skólans eru; viska, virðing og vinátta og einkennist daglegt starf skólans af þeim. 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið  grunnskólakennari.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Faglegur metnaður og skipulagshæfni.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum og unglingum. 

Aðstæður og kjör

Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands (FG). 

Umsóknir 

Umsóknarfrestur er til 16. maí. Frekari upplýsingar veita Sævar Þór Helgason skólastjóri eða Matthea Sigurðardóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 483-0800. Skal umsóknum ásamt ferilskrá skilað í tölvupósti saevar@hveragerdi.is

Skólastjóri 


Síðast breytt: 6. maí 2024
Getum við bætt efni síðunnar?